Abler Shop skilmálar fyrir íslensk félög
Síðast uppfært 11. nóvember 2024
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæði Abler ehf. kt 660117-0670. Kaupandi, samkvæmt skilmálum þessum, er einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu af Seljanda í gegnum vefkerfi Abler. Seljandi (t.d. íþróttafélag), samkvæmt skilmálum þessum, er sá aðili sem selur þá vöru eða þjónustu sem um ræðir í vefkerfi Abler. Þessi skilmálar teljast samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
2. Ábyrgðir og skilaréttir
Söluaðilar (Félag) bera alfarið ábyrgð á gæðum þeirra vara og þjónustu sem þeir selja í gegnum vefverslun Abler og ber kaupanda að leita úrlausnar sinna mála til söluaðila. Það sama á við um skilarétt. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að leita úrlausnar sinna mála til söluaðila.
3. Upplýsingar og verð
Verð í vefverslun Abler og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram. Verð eru einnig birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Söluaðili og Abler áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Söluaðili skal upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.
4. Viðskiptaskilmálar
Skilmálar þessir ákvarðast af Abler ehf og koma fram á vefsíðu vefverslunnar Abler. Abler vekur sérstaka athygli á því að þessir skilmálar gilda einungis um viðskipti Kaupanda við Abler. Um viðskipti Kaupanda við Seljanda kunna að gilda aðrir skilmálar, settir af Seljanda, eða Seljanda og Kaupanda í sameiningu, sem munu þá liggja til grundvallar ef deilur eða ágreiningur rís vegna þeirra viðskipta. Ef Kaupandi fær ekki afgreidda þá vöru eða þjónustu sem hann kaupir og honum veitir tilkall til innan þeirra tímamarka sem fram koma skal Kaupandi leita úrlausnar sinna mála hjá Seljanda. Abler ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á gæðum þeirra vöru- og þjónustu sem keypt er og Seljandi selur í gegnum vefverslun Abler. Fer um það réttarsamband eftir þeim reglum og skilmálum sem gilda á milli Kaupanda og Seljanda. Ef kaupandi velur að greiða áskrift með greiðslukorti þá áskilur seljandi sér rétt til þess að breyta um greiðsluleið kaupanda ef skuldfærsla greiðslukorts mistekst fjórum (4) sinnum í röð (yfir sex daga tímabil). Greiðsluseðill er þá stofnaður í heimabanka kaupanda fyrir gjaldfallinni kröfu og framvegis sendir greiðsluseðlar í heimabanka fyrir reikningum áskriftarinnar. Kröfur eru innheimtar af samstarfsaðila að vali Abler. Gjalddagi er útgáfudagur greiðsluseðils og eindagi er fimmtán (15) dögum síðar. Athygli er vakin á því að greiðslu-, umsýslu- og seðilgjald leggst við útgefna greiðsluseðla og greiðist samhliða. Greiðslu- umsýslu, og seðilgjald tekur breytingum skv. gjaldskrá innheimtuaðila. Tíu (10) dögum eftir eindaga fer krafa í innheimtu með tilheyrandi kostnaði. Dráttarvextir skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 reiknast af ógreiddri peningakröfu frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. Um útgáfu og innheimtu greiðsluseðla vísast að öðru leyti til skilmála Abler um færsluhirðingu. Kjósi kaupandi að breyta greiðsluleið aftur yfir í greiðslukort þarf kaupandi að skrá inn kortaupplýsingar á nýjan leik inn á Mínum síðum í Abler Shop. Breytingin tekur þá gildi frá næstu endurnýjun áskriftarinnar.
5. Trúnaðarupplýsingar
Abler heitir Kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem Kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um meðferð allra persónuupplýsinga fer í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni Abler. Aðeins eigendur og umsjónaraðilar Abler hafa aðgang að þeim ásamt Söluaðila eftir því sem við á en eru þær upplýsingar ekki veittar þriðja aðila nema eins og lýst er í persónuverndarstefnu Abler. Öll vinnsla kreditkortanúmera á Abler er dulkóðuð og fara þær upplýsingar í gegnum heimasvæði viðurkennds kortafyrirtækis. Þegar kaupandi staðfestir kaup í Abler vefverslun, er heimild fengin fyrir viðkomandi upphæð. Abler geymir ekki kortanúmer heldur aðeins “token”. Í greiðsluferlinu fær Abler “token” sem það notar til að framkvæma endurgreiðslur og framtíðar greiðslur sem eru samþykktar af kaupanda. Þetta “token” er tengt tilteknum viðtökureikningi seljanda.
6. Greiðsludreifing
Tekið skal fram að skuldfærslutímabil geta verið breytileg eftir bönkum eða tegundum korta.