Sagan okkar
Hvernig byrjaði þetta?
Eftir Markús Mána M. Maute, meðstofnanda og framkvæmdastjóra
Heimili í íþróttum
Það er stundum talað um að það þurfi þorp til að ala upp barn (á ensku "it takes a village to raise a child") og í mínu tilfelli má segja að þorpið hafi verið íþróttafélagið, þessi reynsla var ástæðan fyrir því að Abler varð til.
Ég flutti til Íslands með móður minni frá Þýskalandi þegar ég var sex ára gamall. Þýskur faðir minn var ekki partur af mínu lífi, og ég og mamma höfðum ekki stórt tengslanet þegar við fluttum til landsins og horfa þurfti í hverja krónu í útgjöldum. Ég var hinsvegar gæfusamur að alast upp í hverfi sem veitti börnum og ungmennum aðgang að góðu skipulögðu íþróttastarfi (og gerir enn). Ég stundaði fleiri en eina íþrótt hjá félaginu. Þjálfararnir lögðu sig fram og voru umhyggjusamir, gáfu okkur t.d. far í keppnir og kynntu okkur fyrir tónlist, tóku okkur með á mfl. leiki og héldu félagslega viðburði og margir urðu mínar föðurímyndir. Ég fann fyrir vináttu liðsfélaga minna og kærleiks foreldra þeirra og upplifði mig sem hluta af stærri heild þar sem ég hafði hlutverk. Þetta var gríðarlega dýrmætt fyrir mig á uppvaxtarárunum og hjálpaði mér með minn fjölþjóðlega bakgrunn að aðlagast samfélaginu. Íþróttafélagið var mitt annað heimili og mitt félagslega og tilfinningalega skjól.
Íþróttir skipta máli - til lengri tíma litið
Ég varði stórum hluta æsku minnar í að stunda íþróttir hjá félaginu. Íþróttasvæði félagsins var staðurinn fyrir okkur vinina á milli skóla og æfinga. Starfið hjá félaginu var metnaðarfullt og hvetjandi sem gerði okkur kleift að æfa og leika íþróttir öllum stundum - í stormasömu en kærleiksríku sambandi við húsverði félagsins. Með tímanum færðumst við vinirnir upp um flokka, metnaðurinn jóks og við lærðum samhengið á milli þess að leggja sig fram, mæta mótlæti, færa fórnir og uppskera eftir því. Við unnum titla og urðum atvinnumenn í handknattleik og spiluðum með landsliðinu á stórmótum. Æskudraumurinn sem þjálfararnir höfðu hvatt okkur til að skrifa niður á blað við 10 ára aldur hafði orðið að veruleika (þvílíkir snillingar).
Þegar horft er tilbaka þá er það þó ekki árangurinn að “ná langt” sem slíkur sem skiptir mestu máli heldur ferðalagið sem fékk mann til að upplifa mótandi og mikilvæg manngildi og þau félagslegu auðæfi sem starfið skilar af sér og maður býr að alla ævi. Langtímaverðmæti skipulags íþrótta- og tómstundastarfs verða því til á uppvaxtarárunum og ætti að vera hægt að gera aðgengileg öllum, óháð samfélagslegri stöðu og því hvort markmiðið sé að verða atvinnumennska eða ekki.




Teymið
Teymið okkar samanstendur af fjölbreyttu fólki með ólíkan bakgrunn og reynslu úr heimi íþrótta, viðskipta, rannsókna og tækni. Við erum drifin áfam á því að þjónusta einstaklinga, félög og stofnanir sem skila gríðarlegum langtíma vermætum til samfélagsins á hverjum degi. Ef þú deilir þessari ástríðu og vilt slást í för með okkur vertu endilega í sambandi.
